Skip to content
Sky Rising News
Partnerships & Media
Document details

Regulation No. 1360/2024 on the Operation of Unmanned Aircraft and Unmanned Aircraft Systems

IcelandMinistry of Infrastructure / Icelandic Transport Authority (Samgongustofa)Nr. 1360/2024

Original text · Icelandic

Reglugerð um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómönnuð loftfarskerfi (nr. 1360/2024)

Nr. 1360/2024 Útgáfa í gildi frá 29. nóv. 2024 (Dags. skjals 18. nóv. 2026) https://api.reglugerd.is/api/v1/regulation/1360-2024/current/pdf/ REGLUGERÐ um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómönnuð loftfarskerfi. 1. gr. Efni og gildissvið. Reglugerð þessi mælir fyrir um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómannaðra loftfarskerfa. Reglugerðin gildir um flug ómannaðra loftfara (dróna) á Íslandi og innan íslenskrar lofthelgi. Lögreglu, Landhelgisgæslu, Almannavörnum og viðbragðsaðilum á þeirra vegum er heimilt að víkja frá kröfum sem snúa að umsókn um leyfi og framkvæmd áhættumats í störfum sínum þegar aðstæður krefjast þess. 2. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd. Samgöngustofa er lögbært yfirvald samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar. 3. gr. Sérstakar takmarkanir á flugi ómannaðra loftfara. a. Óheimilt er að fljúga ómönnuðum loftförum innan 150 metra fjarlægðar frá viðkvæmum opinberum innviðum s.s. orkuverum og tengivirkjum, Alþingi, forsetabústöðum, ráðuneytum, sendiráðum, lögreglustöðvum, fangelsum og sjúkrahúsum, án heimildar eigenda eða umráðenda. b. Um flug í grennd við íbúðarhúsnæði eða annars staðar þar sem fólk dvelst og finnst fyrir gilda almennar reglur um vernd eignarréttar, friðhelgi einkalífs og persónuvernd. c. Óheimilt er að fljúga ómönnuðum loftförum án leyfis rekstraraðila flugvalla á flugvöllum og innan flugvallasvæða og innan bannsvæða ómannaðra loftfara umhverfis áætlunarflugvelli. Innan bannsvæða umhverfis áætlunarflugvelli er þó leyfilegt að fljúga án sérstaks leyfis rekstraraðila ef ómannaða loftfarinu er flogið undir hæð hæstu hindrana, innan 50 metra við flugferil loftfarsins. Við flugbrautir annarra flugvalla en áætlunarflugvalla skal gæta fyllsta öryggis og sýna ýtrustu varkárni. Ómönnuð loftför skulu ávallt víkja fyrir annarri flugumferð. Bannsvæði umhverfis flugvelli skulu auglýst á heimasíðu Samgöngustofu og í Flugmálahandbók Íslands (AIP). d. Fylgja skal fyrirmælum, takmörkunum og banni flugumferðarþjónustudeilda, lögreglu, Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu sem og annarra yfirvalda um flug fjarstýrðra loftfara á tilteknum svæðum. e. Samgöngustofa skal útfæra og auglýsa höft og bönn fyrir flug ómannaðra loftfara í Flugmálahandbók Íslands og á vef stofnunarinnar. 4. gr. Tryggingar. Þeir sem starfrækja ómannað loftfar yfir 20 kg flugtaksmassa eða í undirflokki A2, sérstökum flokki og vottuðum flokki samkvæmt ákvæðum reglugerðar (ESB) 2019/947 skulu taka og viðhalda vátryggingu til greiðslu skaðabóta gagnvart þriðja aðila. 5. gr. Brot. ...

Nr. 1360/2024 Útgáfa í gildi frá 29. nóv. 2024 (Dags. skjals 18. nóv. 2026) https://api.reglugerd.is/api/v1/regulation/1360-2024/current/pdf/ REGLUGERÐ um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómönnuð loftfarskerfi. 1. gr. Efni og gildissvið. Reglugerð þessi mælir fyrir um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómannaðra loftfarskerfa. Reglugerðin

gildir um flug ómannaðra loftfara (dróna) á Íslandi og innan íslenskrar lofthelgi. Lögreglu, Landhelgisgæslu, Almannavörnum og viðbragðsaðilum á þeirra vegum er heimilt að víkja frá kröfum sem snúa að umsókn um leyfi og framkvæmd áhættumats í störfum sínum þegar aðstæður krefjast þess. 2. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa er lögbært yfirvald samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar. 3. gr. Sérstakar takmarkanir á flugi ómannaðra loftfara. a. Óheimilt er að fljúga ómönnuðum loftförum innan 150 metra fjarlægðar frá viðkvæmum opinberum innviðum s.s. orkuverum og tengivirkjum, Alþingi, forsetabústöðum, ráðuneytum, sendiráðum, lögreglustöðvum, fangelsum og sjúkrahúsum, án heimildar eigenda eða umráðenda.

b. Um flug í grennd við íbúðarhúsnæði eða annars staðar þar sem fólk dvelst og finnst fyrir gilda almennar reglur um vernd eignarréttar, friðhelgi einkalífs og persónuvernd. c. Óheimilt er að fljúga ómönnuðum loftförum án leyfis rekstraraðila flugvalla á flugvöllum og innan flugvallasvæða og innan bannsvæða ómannaðra loftfara umhverfis áætlunarflugvelli. Innan bannsvæða

umhverfis áætlunarflugvelli er þó leyfilegt að fljúga án sérstaks leyfis rekstraraðila ef ómannaða loftfarinu er flogið undir hæð hæstu hindrana, innan 50 metra við flugferil loftfarsins. Við flugbrautir annarra flugvalla en áætlunarflugvalla skal gæta fyllsta öryggis og sýna ýtrustu varkárni. Ómönnuð loftför skulu ávallt víkja fyrir annarri flugumferð. Bannsvæði umhverfis flugvelli skulu auglýst á heimasíðu

Samgöngustofu og í Flugmálahandbók Íslands (AIP). d. Fylgja skal fyrirmælum, takmörkunum og banni flugumferðarþjónustudeilda, lögreglu, Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu sem og annarra yfirvalda um flug fjarstýrðra loftfara á tilteknum svæðum. e. Samgöngustofa skal útfæra og auglýsa höft og bönn fyrir flug ómannaðra loftfara í Flugmálahandbók

Íslands og á vef stofnunarinnar. 4. gr. Tryggingar. Þeir sem starfrækja ómannað loftfar yfir 20 kg flugtaksmassa eða í undirflokki A2, sérstökum flokki og vottuðum flokki samkvæmt ákvæðum reglugerðar (ESB) 2019/947 skulu taka og viðhalda vátryggingu til greiðslu skaðabóta gagnvart þriðja aðila. 5. gr. Brot. Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að fimm árum, sbr. 253. gr. laga um

loftferðir nr. 80/2022. 6. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar gerðir með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans: Nr. 1360/2024 Útgáfa í gildi frá 29. nóv. 2024 (Dags. skjals 18. nóv. 2026) https://api.reglugerd.is/api/v1/regulation/1360-2024/current/pdf/

  1. 1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/945 frá 12. mars 2019 um ómönnuð loftfarskerfi og umráðendur ómannaðra loftfarskerfa frá þriðja landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 336-375.
  2. 2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/947 frá 24. maí 2019 um reglur og verklagsreglur fyrir starfrækslu ómannaðra loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 541-567. 3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/639 frá 12. maí 2020 um breytingu á

framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar staðlaðar sviðsmyndir fyrir flug í eða úr augsýn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 893-923. 4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/746 frá 4. júní 2020 um breytingu á

framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 924-925. 5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1058 frá 27. apríl 2020 um breytingu á

framseldri reglugerð (ESB) 2019/945 að því er varðar innleiðingu tveggja nýrra flokka ómannaðra loftfarskerfa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES- viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 390-416. 6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1166 frá 15. júlí 2021 um breytingu á

framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar frestun á þeirri dagsetningu sem staðlaðar sviðsmyndir fyrir flug í eða úr augsýn fjarflugmanns koma til framkvæmda, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1171-1172.

7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/425 frá 14. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar frestun umbreytingardagsetninga vegna notkunar tiltekinna ómannaðra loftfarskerfa í "opna" flokknum og frestun þeirrar dagsetningar sem staðlaðar sviðsmyndir fyrir flug í eða úr augsýn fjarflugmanns koma til framkvæmda, sbr. ákvörðun sameiginlegu

EES-nefndarinnar nr. 141/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1173-1174. 7. gr. Lagastoð og gildistaka. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 72. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi. Samhliða fellur úr gildi reglugerð nr. 990/2017 um starfrækslu fjarstýrðra loftfara.

Ákvæði til bráðabirgða. Undanþágur sem gefnar hafa verið út á grundvelli reglugerðar nr. 990/2017 um starfrækslu fjarstýrðra loftfara halda gildi sínu til 1. maí 2025. Innviðaráðuneytinu, 19. nóvember 2024. Sigurður Ingi Jóhannsson. Ingilín Kristmannsdóttir. Fyrirvari Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu

Stjórnartíðinda nr. 958/2005. Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.

  1. 1. Scope, Emergency Responder Exemptions, and Competent Authority (Articles 1-2): Regulation No. 1360/2024 governs the operation of unmanned aircraft (drones) and unmanned aircraft systems in Iceland and Icelandic airspace. Police, the Coast Guard, Civil Protection, and contracted responders may derogate from permit-application and risk-assessment requirements during urgent duties. Article 2 designates the Icelandic Transport Authority (Samgongustofa) as the competent authority.
  2. 2. Special Flight Restrictions and Airport Rules (Article 3): Prohibits operating unmanned aircraft within 150 meters of sensitive public infrastructure—including power plants, substations, Parliament (Althingi), presidential residences, ministries, embassies, police stations, prisons, and hospitals—without owner or custodian authorization. General property, privacy, and data-protection rules apply near dwellings. Flights are barred without airport-operator permission at airports and within scheduled-airport drone exclusion zones (except below the height of the tallest obstacle within 50 meters of the aircraft path); unmanned aircraft must always yield to other air traffic and obey restrictions published in the Icelandic AIP and by ATS, police, Coast Guard, and Samgongustofa.
  3. 3. Mandatory Insurance and Penalties (Articles 4-5): Article 4 requires operators of unmanned aircraft exceeding 20 kg takeoff mass or operating in subcategory A2, the Specific category, or the Certified category under Regulation (EU) 2019/947 to maintain third-party liability insurance. Under Article 5, violations carry fines or imprisonment up to five years pursuant to Article 253 of the Aviation Act No. 80/2022.
  4. 4. Incorporation of EU UAS Regulations and Repeal (Articles 6-7 & Transitional Provision): Article 6 brings into force across Iceland EEA-adapted Commission Delegated Regulation (EU) 2019/945, Implementing Regulation (EU) 2019/947, and amending Regulations (EU) 2020/639, 2020/746, 2020/1058, 2021/1166, and 2022/425. Issued under Article 72 of Aviation Act No. 80/2022 on 19 November 2024 and effective 29 November 2024, Article 7 repeals Regulation No. 990/2017 while preserving existing exemptions until 1 May 2025.